Jón Ásgeir Jóhannesson, Ingibjörg S. Pálmadóttir og 365 hf. hafa stefnt Sýn, Heiðari Guðjónssyni, forstjóra félagsins, og stjórn þess til greiðslu skaðabóta að fjárhæð þrír milljarðar króna. Meira
Jón Ásgeir Jóhannesson fjárfestir hefur tekið sæti stjórnarformanns í Skeljungi. Aðalfundur félagsins fór fram í gær og var ný stjórn kosin sem síðan skipti með sér verkum. Jón Ásgeir, sem áður var varastjórnarformaður félagsins, tekur við af Jens Meinhard Rasmussen, en hann gaf ekki kost á sér áfram í stjórninni. Meira
Höskuldur H. Ólafssson, fyrrverandi forstjóri Arion banka og Valitor, gefur kost á sér í stjórn Skeljungs, en tilnefningarnefnd félagsins skilaði skýrslu fyrir árið 2020 í gærkvöldi. Stjórnarformaður félagsins, Jens Meinhard Rasmussen, ætlar ekki að gefa kost á sér áfram auk stjórnarmannsins Ata Maria Bærentsen, en aðrir stjórnarmenn vilja halda sæti sínu. Meira
Aðeins þremur dögum eftir sigur á Íslandsmeisturum KR féllu ÍR-ingar úr leik gegn 1. deildarliði í 32-liða úrslitum bikarkeppni karla í körfubolta, Geysisbikarnum, í kvöld. Meira
Kauphöllin tilkynnti í dag kaup félagsins 365 I ehf. á hlutabréfum í Skeljungi hf. Ingibjörg Pálmadóttir er endanlegur eigandi hlutabréfanna og þar sem eiginmaður hennar Jón Ásgeir Jóhannesson er varaformaður stjórnar Skeljungs hefur hann stöðu fruminnherja. Meira
Ásgeir Jónsson hefur verið skipaður seðlabankastjóri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórnarráðinu. Ásgeir tekur við starfinu af Má Guðmundssyni 20. ágúst næstkomandi. Meira
Jens Meinhard Rasmussen var í dag kjörinn formaður stjórnar Skeljungs á stjórnarfundi félagsins. Jón Ásgeir Jóhannesson var kjörinn varaformaður stjórnar. Meira
Miðvikudagurinn 15. maí var síðasti dagurinn þar sem íslensku knattspyrnufélögin gátu fengið til sín leikmenn en félagaskiptaglugganum var lokað þá um kvöldið. Meira
Uppstillingarnefnd Skeljungs hefur lagt til í lokaskýrslu sinni fyrir stjórnarkjör félagsins, sem fram fer á hluthafafundi 27. maí, að fjárfestirinn Jón Ásgeir Jóhannesson verði meðal stjórnarmanna félagsins. Meira
Jón Ásgeir Jóhannesson, oft kenndur við Bónus, segir frá því að hann og eiginkona hans, Ingibjörg Pálmadóttir, hafi kynnst á ráðstefnu í útlöndum og þar með hafi ekki verið aftur snúið. Meira
Katrín Ólafsdóttir, lektor við Háskólann í Reykjavík, er einnig á meðal umsækjenda um stöðu seðlabankastjóra. Þetta kemur fram í uppfærðri tilkynningu frá forsætisráðuneytinu, sem sendi fyrr í dag frá sér lista yfir fimmtán umsækjendur um starf seðlabankastjóra. Meira
Forsætisráðuneytinu hafa borist 16 umsóknir um embætti seðlabankastjóra sem auglýst var laust til umsóknar 20. febrúar en frestur til umsóknar rann út á miðnætti. Meira
Fimm manna stjórn Haga hf. var kjörin á hluthafafundi félagsins sem fram fór á Hilton Reykjavik Nordica í morgun. Jón Ásgeir Jóhannesson fjárfestir var á meðal þeirra sem buðu sig fram til stjórnarsetu en hann náði hins vegar ekki kjöri. Meira
Jón Ásgeir Jóhannesson, stofnandi Bónuss, hefur á síðustu dögum átt fundi með stórum hluthöfum í Högum og kynnt hugmyndir sínar um framtíð smásölurisans. Meira
Jón Ásgeir Jóhannesson er meðal þeirra sem bjóða sig fram í stjórn Haga, en hluthafafundur hefur verið boðaður á föstudaginn eftir viku. Sjö eru í framboði, en aðeins fimm skipa stjórnina. Tilnefningarnefnd leggur ekki til að Jón Ásgeir verði kjörinn. Meira
Úthlutunarnefndir launasjóðs listamanna hafa lokið störfum og úthlutað samtals 1.600 mánaðarlaunum. Um er að ræða launasjóð hönnuða, myndlistarmanna, rithöfunda, sviðslistafólks, tónlistarflytjenda og tónskála. Meira
Það var margt að gerast í tilfinningalífi Íslendinga árið 2018. Fólk gifti sig, byrjaði saman, hætti saman og sleit vinskap eins og enginn væri morgundagurinn. Meira
Allur málskostnaður vegna Aurum Holding-málsins verður greiddur af íslenska ríkinu, en alls eru það tæpar 59 milljónir króna. Þrír sakborningar voru sýknaðir í dag, er Landsréttur kvað upp dóm sinn. Meira
Landsréttur sýknaði í dag alla þrjá sakborningana í Aurum-málinu svokölluðu, þá Lárus Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, Magnús Arnar Arngrímsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs bankans, og Jón Ásgeir Jóhannesson, sem var aðaleigandi bankans í gegnum eignarhaldsfélagið FL Group. Meira
Hinn 22. maí 2008 sendir Jón Ásgeir póst á Lárus Welding og Bjarna með verkefnalista um þau mál sem hann vill að verði kláruð. Efst á þeim lista er „Goldsmith v Fons“ sem Glitnir þarf að klára í vikunni samkvæmt póstinum. Meira